|
|
15.05.2008 09:41:54 / enypeny
jæja, þá eru loksins prófin búin hjá mér!!! þá er það bara palla ball á föstud  hlakka alveg mega til..!  ég tók mig til í gær og raðaði í fataskápinn minn! hann hefur aldrei verið jafn skipulagður  á sér hillu fyrir belti, klúta, veski, you name it hehe ;p og svo fór eg með helling upp i herbergið hennar rakelar, sem eg hef ákveðið að verði my very own fataherbgeri hahaha! ;p það er ekkert verið að nota það, og svo það safni ekki ryki og deyju nú ekki úr leiðindum þá atla eg bara að nota það talandi um að safna ryki... kannski er best að eg taki nú líka til´i herberginu minu... það ern eins og hafi verið varpað sprengju herna eftirprófin og gærdaginn, enn föt á víð og dreif og blöð útum allt... en það er rosalegt skipulag í óreiðinni minni! ;p þarf að venja mig á að vera meir skipulögð  vil samt helst ekki ganga frá blöðunum ef eg skildi nú falla og þurfa að nota þau aftur... og um leið og eg raða þeim á góðan stað get eg lofað að eg finn þau aalldrei aftur hehe ;p en eg var nu svona eiginlega að vona að eg mundi falla í einhverju fagi... bara svona til að gefa mer spark í rassinn... eða ég vona nattla að eg nái, en finnst eg ekki eiga það skilið stundum...! ;p eg kemst alltaf upp með að læra svo lítið og vera mesti tossi skólans!!....  en miklar líkur eru á að eg sé fallin í prófinu sem eg var í gær...! vona þó að það reddist
»
27.04.2008 23:38:08 / enypeny
mer finnst rosalega leiðinlegt þegar fólk á mínum aldri fer í samband og svo hegðar það ser strax eins og það sé "gift"mer finnst það svo mikil synd að fólk getur farið í samband og bara droppað öllum ´sinum vinum og breytt alveg um lífsstíl, bara til að þóknast einum aðila... auðvitað breytist margt þegar fólk byrjar í alvarlegu sambandi, en maður verður nú að hugsa til þess fólks og þess sem maður er vanur að gera áður en sambandið byrjaði... því það líf hentaði manni mjög vel í þann tíma sem maður var single...!
hvað gerist svo þegar sambandið fuðrar upp?
mögulega er aðilinn mjög heppinn og vinir hans taka við honum eins og ekkert hafi gerst, en svo er til fólk sem finnst þetta mjög leiðinlegt og fyrirgefur ekki að vera dömpað svona! svo hef eg verið að pæla doldið í því (eftir umræðu í grilli á laugard)... hvað ef maður mundi vera madly in love með einhverjum og buinn að vera saman kannski í einhvern tíma, mögulega giftur og/eða kominn með börn... svo fattast að þið séuð frændsystkyni, eða systkyni!! mundi maður hætta með aðilanum því þetta er rangt eða mundi maður halda áfram saman því love can concour everything?
»
25.04.2008 10:13:35 / enypeny
ég man nú eftir því þegar eg var nýkomin með bílpróf, ætli bensínverðið hafi ekki verið um 90 kr...
svo hækkaði það og hækkaði og þegar eg kom heim frá DK í sumar var það minnir mig um 120 kr.. svo nuna bara á síðasta manuði er það komið upp í 150 kr!!
þegar eg var nykomin með prófið og bílinn, komst maður alveg þónokkuð langt á 500 kalli, en nuna er maður heppinn ef 500 kallinn nai manni á næstu bensinstöð!
meiri vitleysan... kannski eg gerist bara vörubílstjóri og fari að lemja löggur...! (því það gerir svo mikið gagn! ;p )
»
23.04.2008 17:22:36 / enypeny
mer er alveg saman að ég blogga aldrei, það kemur engum við! mer er alveg sama að enginn les þetta blogg, það kemur mer bara ekkert við!!
ég blogga því ég á að vera að gera eitthvað annað, sem ég nenni ekki að gera! nú er ég búin að sitja upp í skóla frá kl 9 í morgun... varla lesið einn staf... jú kannski einn.. og þennan staf skildi eg bara ENGANN veginn!!
allur þessu tími er búinn að fara í ekkert! hefði getað verið heima að sofa eða greiða mer.
nú ákað eg að skrifa bloggfærslu, svo ég gæti nú hafa afrekað eitthvað yfir daginn, tók hun mig að minnsta kosti mun styttri tíma en tók mig að lesa þennan blessaða staf...
skóli er fyrir kellinga og homma!!!
ps. taka út pirrið fyrir rassinn minn sem er orðinn þreyttur á að sitja í þessum óþægilega og harða stól, ætli maður taki ekki bara sæng með sér á morgun! ég held það nú....
»
20.04.2008 18:23:39 / enypeny
Ég held að við séum allt of gjörn á á taka hlutum og fólki sem sjálfsögðum hlut... Ég gæti talið upp endalaust af hlutum sem við gerum okkur ekki grein fyrir hversu mikilvægt það er og að það er ekki sjálfsagt að eiga. Fólk á það t.d. til að taka hlutum, eins og vatni og olíu sem sjálfsögðum hlut. Nú er ekki til endalaust af olíu, og eru vísindamenn alltaf að reyna að finna uppá nýjum aðferðum til að knýja áfram farartæki eins og bílinn, en við höldum samt áfram að rúnta bara og eyða þannig þessari dýrmætu náttúruafurð sem við eigum. Svo er það vatnið, við hér á landi eyðum svo miklu vatni, því við eigum svo mikið af því! En raunveruleikinn er bara sá að ekki eru til endalausar byrgðir af vatni. Sjáið bara t.d. önnur lönd, aðallega heit lönd, þar sem ekki er til nóg vatn handa öllum. Fyrst við eigum svona mikið vatn hvernig væri að við mundum frekar hætta að láta vatnið renna endalaust og bara senda það til afríku þar sem fólk þarf meira á því að halda (óskhyggja? ). Ég tala nú ekki um loftið, okkar dýrmæta uppspretta súrefnis. Við mengum og mengum loftið okkar. Og hugsum að við verðum nú löngu dauð þegar fólk fer að þurfa að ganga um með súrefnisgrímur.
Við tökum ekki bara vatni og lofti sem gefnum hlut, einnig tökum við oft fólk sem sjálfsagðan hlut. Eins og foreldra okkar og vini, afhverju kemur maður oft fram við þá ens og þeir verði alltaf þarna? Ég held að fólk þurfi að farað koma fram við hvort annað eins og það sé heppið að eiga hvort annað að.
»
11.04.2008 18:15:30 / enypeny
Ég hef verið að pæla svolítið í baktali... Baktal er eitthvað sem stelpur gera mikið af. Það er eins og stelpur baktali til að líða betur með sjálfa sig og til að láta aðra líta illa út svo þær líti betur út. Eða af einhverri annarri ástæðu? Það eru örugglega margar ástæður fyrir því svosem, en ég kom með sýnilegustu ástæður. Oftar en ekki þá heyri ég stelpur segja "oohh eg hata baktal og ég baktala sko EKKI!" . Ég viðurkenni að sjálf er ég ein af þeim sem segi þetta. Ég er ekki að segja að ég sé svaka baktalari, en eg vil sjálf halda því fram að ef ég baktala einhvern þá hef ég, eða mun ég, segja þeim sem ég baktala það sem mér finnst (eða það sem ég var að Baktala aðilan um). Ég reyni að fylgja þessari reglu, að segja ekkert UM neinn sem ég get ekki sagt VIÐ hann! EN og þetta er stórt en, þá er ég ekki fullkomin, og auðvitað kemur fyrir að maður fylgir ekki sinni eigin reglu. Talandi um að vera ekki fullkominn, þá kem ég að öðru í sambandi við þetta. Ég held að ALLIR halda að þeir séu það nægilega fullkomnir að þeim dettur ekkert í hug sem nokkur maður gæti baktalað þá um. Sjálf viðurkenni ég (aftur) að ég tel mig það nægilega fullkomna að mér bara dettur ekkert í hug sem einhver gæti sagt illt um mig, bak við mig. En enginn er það fullkominn, svo ég geri mér grein fyrir að oft hafi ég verið baktöluð. Leiðinlegt, en svona er þetta bara. Ástæður sem fólk hefur eru eins fjölbreyttar og margar og fólk er. En ég spyr þá, hvað er það sem drífur þetta áfram? Er það samkeppni? Er það hræðsla við náungan? Afhverju getur fólk ekki lifað í sátt og samlyndi við sjálft sig og aðra?
Að lokum, Ef þú hefur ekkert fallegt að segja, ekki segja neitt!
»
04.03.2008 22:57:20 / enypeny
eins og svo margir vita þá er eg alltof töff og tek strætó, það gerir það að verkum að ég labba doldið mikið yfir götur.... nu eru margar svona göngubrautir yfir göturnar, þar sem gangandi vegfarendur ganga fyrir. hef eg pælt nokkrum sinnum í því þegar eg bíð eftir að einhver stoppi til að hleypa mer yfir þá eru það ALDREI konur...! það er eins og kvenkynið sé eitthvað meira utan við sig og taka minna eftir manni eeeða þeim er bara alveg sama! maður bíður og bíður eftir að einhver maður stoppar og hleypi manni yfir. stóðum um daginn 3 að bíða eftir svaka umferð á bústaðaveginum... og eg fylgdist með hvernig fólk var að keyra fram hja, bbaarraa konur og EINN alltof töff strakur að tala í siman.. svo loksins kom maður keyrandi sem stoppaði...! FINALLY!

eg veit ekki hvort þetta kallar á að karlmenn seu betri ökumenn, en greinilega annaðhvort kurteisari eða taka betur eftir því sem er í kringum þá..
í lokin vil eg segja.. þetta kalla ég dónaskap...!
»
12.12.2007 16:46:56 / enypeny
hvenar er svo eiginlega barneignaldur ?
back in the day væri ég löngu komin með börn og hús og mann...
sjáið bara hana móður mina, á minum aldri var hun komin með 2 börn,
hús og mann, og gift!!
en nu á tímum tæknialdar þá er ekki eðlilegt ef ég væri
komin með barn hus og mann...
hvenar er það talið "normal" að vera orðinn
fulorðins?
»
02.12.2007 01:34:01 / enypeny
átti ég gott samtal við vin minn og ferðafelaga, hann inga... gott spjall verð ég að segja en endaði með að ræða aðeins um kúk.... nu verð ég að lýsa undrun minni á því að ný sést allsstaðar í dýraríkinu að dýrin láta bara vaða á jörðina, kvendýr jafnt sem karldýr.... ekki þykir það skrítið eða óeðlilegt... en svo í einum parti dýraríkisins, okkur mönnunum, þá þykir bara hreinasti viðbjóður að konur svo mikið sem TALA um kúk... að kvenmaður skuli detta í hug að láta þetta orð frá sér er ekki talið við hæfi.... þykir mer þetta vera vandamál...! ekki á þetta að vera feimnismál..!! takk fyrir mig og góða nótt... (og góðar hægðir! (einum of? því eg er kvenmaður? pottþétt!!))
»
22.10.2007 22:41:18 / enypeny
það var verið að benda mer á það að ef maður er í þeirri deild sem ég er í í skólanum, ef maður er að læra raunvísindi... þá er maður væntanlega hlynntur þróunnarkenningunni og svona...og þá væri nú varla hægt að vera trúaður og trúa á guð... þykir mer það nú ansi leiðinlegt.... eg skil nu alveg afhverju, því biblían og þróunarkenningin stangast svooolítið á!  eeennn eg verð nú bara að segja að ég trúi nú bara samt á guð, eða ég trúi á allt það góða í manninum, og allt það góða í heiminum, eg trúi að ef fólk er gott veitist því eitthvað gott á móti, hvort sem það er í lífinu eða eftir dauða.. eg trúi á drauga.. ég trúi á yfirnáttúrulega hluti og kraftaverk... eg trúi á örlög.. eg trúi að allt sem maður gerir hafi afleiðingar... en ég auðvitað trúi ég líka á þær uppgötvanir sem ma'urinn hefur gert, en maðurinn sér nú samt ekki allan heiminn, og alltaf erum við að uppgötva eitthvað nýtt, hver veit nema einn daginn verður afsannað þyngdarlögmálið?? það hefur oft verið afsannað það sem einhvre maður sannaði fyrir og var kannski svaka lögmál í mörghundruð ár... hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér? eg ætla ekki að afskrifa guð fyrr en einhver getur SANNAÐ að hann er ekki til... enginn getur sannað að hann sé til en enginn getur afsannað það heldur....  mer afskaplega gott að hafa eitthvað tikl að trúa á, get ekki hugsað mer að þetta sé okkar eina líf og svo er bara endir.... eg bara get það ekki... eg vil bara trúa því að guð hafi ákveðið að svona skildi þróuninn verða!! apinn skal núna breytast í mann hehe  jæja.. komið gott svona á fimmtudegi... tilraun snemma í fyrramálið og svona... atla að koma mer í háttinn 
»
20.10.2007 21:04:24 / enypeny
mér finnst þetta lag alveg rosalega fallegt skíttí píkuna á ðér herra forseti!! Dear Mr. President, Come take a walk with me. Let's pretend we're just two people and You're not better than me. I'd like to ask you some questions if we can speak honestly.
What do you feel when you see all the homeless on the street? Who do you pray for at night before you go to sleep? What do you feel when you look in the mirror? Are you proud?
How do you sleep while the rest of us cry? How do you dream when a mother has no chance to say goodbye? How do you walk with your head held high? Can you even look me in the eye And tell me why?
Dear Mr. President, Were you a lonely boy? Are you a lonely boy? Are you a lonely boy? How can you say No child is left behind? We're not dumb and we're not blind. They're all sitting in your cells While you pave the road to hell.
What kind of father would take his own daughter's rights away? And what kind of father might hate his own daughter if she were gay? I can only imagine what the first lady has to say You've come a long way from whiskey and cocaine.
How do you sleep while the rest of us cry? How do you dream when a mother has no chance to say goodbye? How do you walk with your head held high? Can you even look me in the eye?
Let me tell you 'bout hard work Minimum wage with a baby on the way Let me tell you 'bout hard work Rebuilding your house after the bombs took them away Let me tell you 'bout hard work Building a bed out of a cardboard box Let me tell you 'bout hard work Hard work Hard work You don't know nothing 'bout hard work Hard work Hard work Oh
How do you sleep at night? How do you walk with your head held high? Dear Mr. President, You'd never take a walk with me. Would you?
»
19.10.2007 21:06:05 / enypeny
mér finnst franskur rennilás alveg rosaleg uppfinning!!! maðurinn sem fann hann upp er pottþétt moldríkur!!! að honum skuli hafa dottið þetta í hug! alveg hreint magnað....!  
»
13.10.2007 22:04:50 / enypeny
eg verð nú bara að segja að mer finnst ekki að það eigi að fara að selja áfengi í matvörubuðum!! þá fer fólk að drekka mun meira!! ég meina þá fer svona fólk sem er on the verge að vera alkóhólistar, þeir fara kannski að versla í matinn og æjiii taka svona eina kippu af bjór í leiðinni!! maður nennir ekkert alltaf í ríkið..:! sem dregur kannski svolitið úr neyslu... svo með timanum yrði þetta bara potþétt eins og i td DK þar er ekkret voða mikið verið að passa hversu gamlir krakkarnir eru sem kaupa áfengið, það mundi pottþétt leiða til meiri neyslu meðal ungmenna!! það er bara mjög gott eftirleit með þessu í ríkinu. mer finst þetta ekki neitt sniðugt! oooggg svo finnst mer allskekki að eigi að lækka aldurinn til að kaupa áfengi... líka plus það þá mega krakkar undir 18 ára ekki afgreiða áfengi, hvernig á þá eftir að ganga að manna búðir á íslandi?? gangi ykur bara vel! meiri hluti krakkanna sem vinna á svona stöðum er á menntaskóla aldri.... eeennn im just saying... þetta er fínt eins og þetta er!! 
»
25.09.2007 19:55:41 / enypeny
| | 100. Ertu með lag á heilanum? Hvað og hversvegna? like this, með kelly rowland og eve minnir mig... veit ekki afherju,var með indiana jones lagið á heilanum í dag ... ekki guðmund afhverju...
99. Ertu í vinnu? bara haskólanum, en er með vinnu sem eg er samt ekkret buin að fara í síðan eg byrjaði i skolanum ;p
98. Miðnafn maria
97. Gælunafn? enypeny ;p
96. Hefurðu logið síðasta sólarhringinn? lýg nu afskaplega sjaldan, en gabba voða mikið, væri ekkret hissa ef eg hafi gert það a síðasta sólarhring
95. Besta "break-up" lag? "i hate you so much right now!!" eða er ekki verið að meina lagið sem spiar undir þegar marr er breaking up with eikkern?? ;p
94. Hver er síðasti staðurinn sem þú flaugst til? kann ekki að fljúga petur pan hefur ekkret komið í heimsókn til mín :/ 93. Síðasta bíómynd sem þú sást og með hverjum? blind dating með petri hehe;p
92. Hvað gerir þig reiða? æji eg er nu ekkert oft reið... eina manneskjan sem getur gret mig reiiða er systir mín... og verð stundum dolið reið/pirruð á verkefnum sem ég á að gera fyrir ksólan sem eg skil ekkert í ;p
91. Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Góð og hjalpa fólki sem minna mega sín,
90. Eftirnafnið þitt er? Timberlake
89. Hversu löng leið er í skólann þinn/vinnuna? á háannatíma er eg í svona 15 min að keyra...
88. Áttu vin af gagnstæðu kyni sem þú getur talað við? nei guð eg er svo hrædd við karlmenn! hehe jújú auðvitað á marr typpi til að tala við!! ;p
87. Áttu systkini? jahh...! mamma er babymachinERY!! ;p
86. Hvar ertu núna? leyndó...
85. Hvert ertu að fara í kvöld? greinilega ekkret ef ég á að geta klárað þessar spurningar.. ;p
84. Hvað segja sjöundu skilaboðin í símanum þínum? um að það sé salsa í mosó, og hvort eg hafi ekki ahuga ;p
83. Hver er síðasta manneskjan sem þú sendir skilaboð? hvernig skilaboð? var að tala við andreu á msn rétt í þessu ;p
82. Hvað er þér á vinstri hönd akkúrat núna? fataskápurinn minn...
81. Hvar er mamma þín? uppi, sofandi held eg...
80. Hvað gerðirðu í gærkvöldi? lærði....
79. Hver er fimmta manneskjan í "ósvöruð símtöl" á símanum þínum? rósa
78. Nálægasti svarti hlutur er? tölvan...
77. Hversu oft færðu launaseðla? einu sinni í manuði...
76. Finnst þér gaman að horfa á fótbolta? ekkert svo.. legg það ekkret í vana minn, en samt alltaf um leið og eg byrja að horfa finnst mer það ýkt spennandi! ;p finnst líka svo gaman að halda með "hinu" liðinu sem hinir eru á móti! ;p
75. Syngurðu í sturtu? j´jaá,, raula stundum smá... dansa líka stundum hehehe!
74. Áttu gæludýr? bara rakeli...
73. Hver er upphafsíðan á internetinu hjá þér? msn.is or sth heldþað hafi komið þegar eg fékk mer msn í tölvuna... hehe ;p
72. Hvenær hlustaðirðu síðast á kántrýtónlist? er dolly parton ekki country? var barað hlusta a eitt aðan! ;p
71. Hvenær hlustaðirðu síðast á klassíska tónlist? geri það nu svo afskaplega sjaldan...
70. Býrðu þar sem þú fæddist? það búa nú ekkret margir á spitalanum held eg...
69. Hvað óttastu? svo margt... missa eikkern nákominn mer er efst í huga....
68. Hvað heyrirðu núna?
ok... nu held eg afram... byraði á þessi fyrir 2 dögum hehe ;p
67. Hversu mörg lyf eru í blóðrás þinni núna? ekkret... ;p nema kannski ef eg hef andað eikkerju að mer í itlraun áðan.. hehe 
66. Viltu halda núverandi starfi eða ertu að leita að nýju? bara halda núverandi starfi! 
65. Í hverju ertu? hehe "kemuru oft hingað?" heh 64. Síðasta manneskja til að kommenta á þig? uhhh komment? as in a netinu? ekki aalveg viss... nennikki að kíkja ;p
63. Syngurðu? freakin góður singer! heh orr nott...!
62. Metal eða kántrý? britney?
61. Rokk eða rapp? bitch....ho....heheh rapp ;p
60. Finnst þér ostur góður? já !!! elska ost! uppáhaldsið mitt!
59. Hvern hringdirðu síðast í? pétur
58. Hver hringdi síðast í þig? hehe petur ;p þurfti nattla ða ná í mig í skolan hehe! ekki tek ég strætó! ;p
57. Gengurðu með skartgripi daglega? jeebbb...
56. Hvað ertu að gera núna? hlusta á tónlist, klara þetta, en á að verað læra.. ;p
55. Hver er síðasta manneskja sem þú faðmaðir? hhhmmm... sjálfa mig? 
54. Myndirðu deyja fyrir einhvern? hmmm...fer eftir útaf hverju... mundi deyja FREKAR en eikker annar... en ekki bara deyja því þeim langar það hehe ;p
53. Hvað finnst þér þú hafa lært síðast?
á function skipun í matlab.... samt lærði það í raun ekkret....fekk samt einkakennslu ;p
52. Er þér kalt? neejj..
51. Hvernig lyktarðu? goodddd...! hehe ;p
50. Er eitthvað sem truflar þig núna/ertu að hugsa um eitthvað sérstakt? jaaa... eg er alltaf að hugsa... þessar spurnigar trbbla mig pínu, langar að klára þetta!! this is my everest!!! 
49. Hvaða dagur er á morgun? payday! 
48. Hvað ertu að gera á morgun? farí skóla.... oooggg svo eikker raunó kynning= drekka með kennurum! ;p
47. Ef þinn fyrrverandi bæði þig um að reyna aftur, myndirðu gera það? hehe ;p
46. Sérðu eftir að hafa sagt einhverjum upp? nei, atla nu ekkert að vera að sjá eftir neinu....
45. Hver batt hnútinn á síðasta samband sem þú varst í? síðasta?? eins og eg se´bara buin að eiga allskonar kæró! ;p eeenn það var bara eila í sameinigu held eg... grétum bæði heheheh! ;p
44. Horfirðu á íþróttir í sjónvarpinu? get nu ekki sagt það... en dett stundum inní svoleis... annars vil eg helst horfa á dans eða fimleika.. en það er bara alltof sjaldan...
43. Ertu hrifin af einhverjum? auðvitað!!
42. Kanntu að synda? er það ekki skylda?
40. Hvert fórstu síðast í frí? ahh.. frí... það er eikkað svo fjarstætt fyrir mer nuna..
39. Ertu eða hefurðu verið skráð í herinn? armychick!! naaaa... væri samt töff! ;p
38. Hversu langt er/var þitt lengsta samband? 2 ár...
37. Hverju tekurðu fyrst eftir við hitt kynið? misjafnt.... hvernig manneskjan ber sig soldið... mer finnst útgeislun skipta rosa miklu máli, meira en útlit... (æji... er það ekki bara ljótt fólk sem segir þetta??) hehe ;p
36. Hefurðu einhvern tímann gefið/verið gefinn trúlofunarhringur? hahaha neihhh!!
35. Bandaríkin eða Kanada? hvort er betra? bara farið til us and a... voða flott ;p
34. Hvað er klukkan? að verða 8....
33. Hver yrðu viðbrögð þín ef þú kæmist að því að þú værir ættleidd? það veit eg ekki!! örgla hissa! en á svo góða fjölskyldu að ég er bara rosa heppin... 
32. Gallabuxur eða jogging? sko eg elska að vera þægjó! ;p er samt meira í galló...
31. Hvað ættirðu að vera að gera? læra!
30. Ætlarðu að gera það? atla allavena að reyna...
29. Ertu í sokkum? yes, gulum! hehe ;p
28. Áttu stór sólgleraugu? jebb...
27. Hefurðu grátið svo mikið að þú varðst veik? neeii... er það hægt...?
26. Hefurðu verið í fangelsi? hehhe nei... ;p eg er nu ekki svo mikill lögbrjótur!
25. Hefurðu æft íþróttir? auðvitað!
24. Viltu giftast? auðvitað..! ekki nærri strax samt ;p
23. Hefurðu nýlega talað við þinn nýlegasta fyrrverandi? já...
22. Ættu vinir þínir að deita þína fyrrverandi? nei!! eg mundi vera brjáluð!!
21. Finnast þér allir strákar asnar? heheheh! neihh... stlepur eru pottþett jafnmiklir asnar!! bara öðruvísi! hehe;p oogg eg alhæfi nu aldrei ;p
20. Heldurðu að það sé ástæða fyrir öllu? jaaa.. eg held að allt sem marr gerir og allar ákvarðanir hafi áhrif á áframhaldið...
19. Uppáhalds sjónvarpsþáttur? house, csi, family guy, simpsons, sex and the city... pottþétt eikkkað fleirra.. elska lika americas next top model... ;p
18. Finnast þér eighties myndir skemmtilegar? hehe jaaa...oft ;p
17. hvernig finnst þér "POUR SOME SUGAR ON ME" með DEF LEPPARD? er það lag eða? hehe ;p
16. Dansarðu við það? eg dansa við allt... ;p
15. Hvenær vaknaðirðu í morgun? 7
14. Svafstu ein?
13. Besta borg sem þú hefur farið til? reykjavík city! hehhe nei æji eg veit ekki... hef ekki komið á marga staði í heiminum.. langar samt að sjá allan heiminn! 
12. hefurðu farið til London? nobb... eða jú millilent þar í eina nótt þar eikerntiman þegar eg var á leið til us of a...
11. Geturðu sleikt á þér tærnar? hahaha! eg varð að tjekka! hehe næ svo langt... eeennn er með doldla táfóbíu svo ég mundi aldrei sleikja þær! hehe ;p svo nei eg get það ´´i rauninni ekki ;p
10. Uppáhaldsnammi? allt sterkt og lakkrís! ;p
9. Hefurðu verið í framhaldsskóla? jebb, buin með einn... ;p
8. Uppáhalds búð? á enga eina serstaka uppájalds..hef ekki komist í búðir svo lengi :/ eða jú bónus er æði hehe ;p
7. uppáhaldstími dagsins? sá tími sem eg hef ekkert að grea, hef engu að sinna, og get gret það sem mer sýnist!
6.Hefurðu sleikt kinn á einhverjum öðrum en sjálfri þér? jáhh..! ;p
5. Hefurðu séð allar spiderman myndirnar? eru þær margar? hef séð eina held eg.... kannski nr 2... er það kannski allar?
4. Hver er uppáhaldsárstíðin þín? sumar
3. Hvers hlakkarðu til? að klara skólann og hitta andreu... um jólin hehehe! ;p
2. Hefurðu týnst í myrkri? jáhh...oft labbað á eikkað ;p
1. Hvar er besti vinur þinn núna? á grundas´tignum eða í vinnunni 
wooww.. eg helt þetta yrði aldrei buið... en þá er að snúa ser að lær´dómnum... :/ back to business! æjiii i dont wanna! |
»
24.09.2007 17:00:35 / enypeny
eg veit nu fátt betra en að sitja í bílnum mínum, keyra ýkt hratt (helst í spyrnu við eikkern sem veit ekki að því og hlusta ýkt hátt á tónlist....! hárið flagsandi í vindinum, með sólina í augunum, brosandi hringinn, í bílnum mínum, honum gvendi.... aahhh gvendur... við höfum átt góðar stundir saman.... mannstu þegar við keyrðum í pollana? mannstu þegar við keyrðum í brjáluðum byl á hellisheiðinni? mannstu allar þær stundir sem við vorum næstum búin að klessa á? jáá.. þær hafa nu verið ansi margar, gamli minn.... en eitt munum við aldrei, aldrei gleyma, það var þegar löggan stoppaði okkur... þá vorum við nú að gera eitthvað sem ekki mátti.... en nú verðum við að vera viðskila í þó nokkurn tíma útaf því... þetta var nú meiri vitleysan í okkur... en enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur... þegar við fáum aftur að keyra saman með tónlistina í botn að hræða aðra vegfarendur, þá munum við sko vera glöð í félagsskap hvors annars... það skal ég sko segja þér.... eg mun sakna þín... 
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|